
ISBN: 9789935984319
Utgiven: 2025-10-21
Format: Inbunden
Språk: ice
Genre: Skönlitteratur barn och ungdom
Það er föstudagur og Alex slappar af í símanum áður en hann fer í bekkjarpartí. Skyndilega dúkkar ókunnug stúlka upp í spjallinu og bætir honum við sem vini. Alex hefur ekkert annað að gera og byrjar að spjalla við hana. Þegar hún vill sjá mynd af honum hikar hann í fyrstu – og síðan dynur ógæfan yfir.
Segðu frá Alex er ein af þremur bókum í seríunni um Alex. Bækurnar eru fyrirbyggjandi lesning sem auðveldar börnum og fullorðnum að eiga erfiðar en nauðsynlegar samræður um karlmennsku, kynferðisbrot, hópþrýsting og afbrot.
Caroline Engvall er rithöfundur og blaðamaður sem hefur skrifað margar vinsælar bækur fyrir fullorðna, ungmenni og börn. Hún hefur hlotið margvísleg verðlaun fyrir fræðslustarf sitt í þágu barna. Í dag er hún einn fremsti sérfræðingur Svíþjóðar í forvar- narstarfi gegn tælingu og öðrum kynferðisafbrotum gegn börnum á netinu.